|
|

|
 |
|
Félagið
|
>> Stjórn
>> Stjórnendur
|
Saga
|
SAH Afurðir ehf. var stofnað 1. janúar 2006. Stofnendur og helstu hluthafar eru Sölufélag Austur Húnvetninga sem á 51% og Kjarnafæði sem á 36%. Bændum og starfsmönnum hefu verið boðið að kaupa 13% og er meirihluti þess þegar seldur. Heildarhlutafé er 188 m.kr.
Markið SAH Afurða er að veita bændum
úrvalsþjónustu á
samkeppnishæfu verði hvað varðar
slátrun og sölu kjötafurða,
auk þess að greiða hluthöfum
sínum arð.
SAH Afurðir byggja á traustum grunni Sölufélags Austur Húnvetninga en fyrsta sláturhús þess félags var byggt á Blönduósi 1908 og frá þeim tíma hefur verið samfelld starfsemi á Blönduósi á þessu sviði.
|
Starfsemi
|
Slátrað er sauðfé
af svæði sem nær frá
Kelduhverfi í austri til Dýrafjarðar
í vestri, ásamt fé úr
Borgarfirði, Dölum og Þingvallasveit.
Megin starfssvæði SAH Afurða er
samt sem áður norðan og vestanvert
landið.
Nautgripum og hrossum er slátrað
eftir því sem framboð gefur
tilefni til.
Samhliða rekstri sláturhúss
er rekin kjötvinnsla sem stofnuð var
1963, þar sem megináherslan er
lögð á grófvinnslu fyrir
aðrar kjötvinnslur.
|
Gæðakerfi
|
SAH Afurðir hefur virkt HACCP gæðakerfi
sem tryggir öryggi og heilnæmi afurða félagsins
og að réttum framleiðsluháttum sé
fylgt í hvívetna. SAH Afurðir hefur einnig leyfi til
útflutnings dilkakjöts, hrossakjöts og innmats
úr sauðfé á evrópumarkað.
|
| |
|
|