Eingreiðsla vegna sauðfjárinnleggs

Ákveðið hefur verið að greidd verði eingreiðsla vegna sauðfjárinnleggs til SAH Afurða og Norðlenska haustið 2022.  Eingreiðslan nemur 26 kr á hvert innlagt kg hjá sláturhúsunum og verður til greðislu 25. febrúar næstkomandi.

Eingreiðslan er hugsuð til að koma enn frekar til móts við bændur vegna hækkandi framleiðslukostanaðar á þeirra framleiðslu.  Áður útgefin verðskrá félaganna fyrir sauðfjárinnlegg gaf meðalverð um 720kr/kg.  Með fyrrnefndri eingreiðslu munu félögin því greiða sem nemur um 746 kr/kg fyrir sauðfjárinnlegg haustins 2022.