Verð á dilkakjöti haustið 2022 og uppbót á verð dilkakjöts árið 2021

Ákveðið hefur verið að greiða 3% uppbót á innlagt dilkakjöt árið 2021.  Uppbótin kemur til greiðslu í byrjun maí 2022.

Samhliða ákvörðun um uppbótargreiðslu var ákveðið að verð á dilkakjöti haustið 2022 hækki um að lágmarki 10% frá endanlegu verði fyrir dilkakjöt árið 2021.  Vonir standa til þess að markaðsaðstæður verði með þeim hætti að unnt verði að hækka innlegg haustið 2022 umfram áðurnefnd 10%.