Sláturvertíð 2019

SAH Afurðir ætlar að byrja að slátra sauðfé í viku 36, þ.e. 6. september. Áætlað er að sláturtíð ljúki 25. október. Grunnverð hefur ekki verið gefið út.

Bændur eru beðnir um að huga tímanlega að sláturpöntunum og taki frá heppilega daga í síma 455-2200 eða tölvupóst á sah@sahun.is.

Varðandi heimtöku  2019:

Í haust mun verða breyting á verðskrá fyrir heimtöku. Innleggjendur sem leggja inn allt sitt sláturfé hjá SAH Afurðum falla undir verðskrá 1. Aðrir innleggjendur greiða samkvæmt verðskrá 2.

Verðskrá 1.

Sláturkostnaður / heimtaka er 3.800 kr. pr. stk. lamb eða fullorðið.

Fínsögun kostar aukalega 40 kr. / kg.

Verðskrá 2

Sláturkostnaður / heimtaka er 4.800 kr. pr. stk. lamb eða fullorðið.

Fínsögun kostar aukalega 55 kr. / kg.

 

Hagnýtar upplýsingar um heimtöku

  • Huga þarf að heimtöku í síðasta lagi degi áður en slátrað er.
  • Pantanir fyrir heimtöku eru sendar í tölvupósti á sah@sahun.is. Þeir sem ekki eiga kost á því að senda tölvupóst, senda upplýsingar á sér blaði með bílstjóra þegar fé er sótt. Það er mjög mikilvægt að pantanir á heimtöku komist tímanlega og skilmerkilega til skila daginn fyrir slátrun.
  • Ef beiðni fyrir heimtöku skilar sér ekki deginum áður en slátrun á sér stað verður ekki hægt fá skrokka úr eigin framleiðslu og verða því valdir úr safni.
  • Taka þarf fram að ef, viðkomandi innleggjandi vill fá allt heimtekið sem fer í ákveðinn flokk, að það sé þá tekið fram að hámarki hversu marga skrokka.  Eins öfugt að ef ekkert fer í tiltekinn flokk, sem beðið er um heim, að þá sé tekið fram einhverja aðra flokka í staðin. Undantekningartilfelli eru um að skrokkar sem eiga að vera heimteknir fari í úrkast. Í þeim tilfellum er ekki settur annar skrokkur í staðin nema það sé tekið sérstaklega fram.
  • Taka þarf skýrt fram hvort eigi að saga heimtökukjötið og hvernig.
  • Hvort skrokkar eigi að vera heilir, vera 7 parta sagaðir eða fínsagaðir.
  • 7 parta sögun er þegar skrokkur er hlutaður í; læri heil, hryggur heill, frampartar heilir og slög heil. Athugið að hækill er hafður á lærum í 7 parta sögun. Allt umfram þessa sögun er fínsögun.
  • Heilir skrokkar eru pokaðir og grisjaðir. Sagaðir skrokkar er pakkað hverjum fyrir sig í pappakassa.
  • Taka þarf fram ef innleggjandi vill láta senda sér kjötið greiðir hann allan kostnað við sendingu.

Með von um góða samvinnu

Starfsfólk SAH‐Afurða